05desember

Held ég sé hćtt...

Ætlaði bara að segja að ég sé hætt þessu bloggi, nenni þessu ekki lengur........

En ég ætlaði líka að segja að það er búið að skíra litlu frænku og hún heitir:

Harpa Hrönn Geirdal Helgadóttir

Verð samt með myndasíðuna í gangi:
http://public.fotki.com/batkolla

ok bæ
05. desember 2007 klukkan 11:16
Kolbrún
2 athugasemdir
13nóvember

Skólinn fer ađ verđa búin...

Jæja ætli það sé ekki komin tími til að skrifa eitthvað. Ég er bara í skólanum og veit ekkert hvað ég á að gera, mér finns eins og ég sé nánast búin með tímaritið, búin með allar aulýsingar, viðtöl og greinar eina sem mér finnst eftir er forsíðan og það eina sem mig vantar á hana er mynd, og ég veit ekkert hvernig mynd ég á að hafa. Þannig að ég er eiginlega stopp. Var að fá einkunnir í þremur verkefnum sem ég er búin með á önninni og ég er svosem ekkert rosalega ánægð með útkomuna en ég allavega er búin að ná því, er það ekki aðalega það sem skiptir máli, ég er allavega sátt við það. Það eru tíu dagar eftir og ég veit ekki hvað ég á að gera af mér þessa daga, ég verð að reyna að finna eitthvað út úr því. Lokaprófið verður 4.des og útskrirt 19. des. ef ég næ þar að segja.

Ég er búin að fá nýja nágranna, þau virðast vera mjög fín par með lítið barn og lítin hund sem heitir Mozart og er mjög sætur, ég er nú samt ekki miðkið fyrir svona litla rotthunda en þessi er mjög sætur, þau eru strax búin að bjóða mér hina þessa hluti sem þau ætla að losa sig við, ég er búin að fá tvær hillur úr Ikea og handryksugu, svo eru þau búin að bjóða mér rimlagardínur eins og ég ætlaði alltaf að fá mér en hafði ekki efni á, mjög fínt.Glottandi Þau eru víst að kaupa sér bara nýntt til að setja í nýju íbúðina og það er víst allt bara svart, ég spurði hana hvort hún ætlaði að hafa bara allt svart og það er víst, ég held að ég gæti ekki haft allt svart hjá mér, svartar hillur, svartur sófi, svartar gardínur þetta er of mikið finnst mér, en skiptir ekki máli ég þarf ekki að búa þar.

Allavega litla frænka er orðin 7 vikna held ég og hún er fljót að stækka, vaxin upp úr fullt af fötum. Hún er svo mikil dúlla að manni langar bara að kremja hana í hvert skipti sem mar sér hana en mar gerir það náttla ekki en samt svo feistandi. :) Það á að skíra hana 1.des og veislan verður heima hjá mömmu og pabba. Svo verður alveg fullt að gómsætum kræsingum....umm.....Það er held ég búið að bjóða alveg 50 manns, en það komast yfirleitt ekki allir þannig að það er spurning hvað koma margir.

Svo eru jólin bara að nálgast og allt sem snýst í kring um það..úff...en það sem mar þarf að fara að spá í núna er að fara gera aðventukrans, en það er spurning hvernig mar á að hafa hann, ég má eiginlege ekki hafa neitt lifandi heima hjá mér, því það er rifið í tætlur eða allt bitið við fyrsta tækifæri.

Jæja ég ætla að reyna að fara gera eitthvað hérna í skólanum...
Adios amigos
13. nóvember 2007 klukkan 11:08
Kolbrún
1 athugasemd
02október

Litil frćnka komin

Jæja þá er ég búin að eignast litla frænku. Árdís og Helgi eignuðust fallega stúlku 21. september síðasliðinn. Hún var 52cm og 15 merkur, og vá hún er svo falleg og mikið krútt. Síðustu helgi komu rosalega margir að kíkja á hana og hún fékk frekar mikið af gjöfum föt og ýmislegt annað. Allavega á hún að eiga nóg núna.

Annars er frekar lítið að frétta af mér, er reyndar búin að vera frekar veik síðustu 3 vikur en er öll að koma til núna, fór í skólan í gær í fyrsta skipti í rúmlega 2 vikur og ég er komin frekar eftir áætlun en ég hlýt að ná því upp með mikilli vinnu. Verð bara að vera dugleg, en það er bara spurning hvað mar nennir að gera heima eftir heilan dag í sólanum, þetta er alveg 100% vinna sko. En mar verður að láta sig hafa það.

Nú er ég búin að búa í íbúðinni minni í 1 mánuð og það gengur bara mjög vel enn sem komið er. Það er mjög fínt að vera svona útaf fyrir sig, ekki það að ég sakna pínulítið mömmu og pabba. Svo er Moli farin að venjast að vera í svona lítilli íbúð, hann er samt mjög duglegaur að vekja mig á nóttunni en mar verður bara að nota eyrnatappa þegar það gerist. Sem er allt í lagi.

Jæja ekki meira í bili, þarf að fara að halda áfram að læra....
Later
02. október 2007 klukkan 09:22
Kolbrún
10 athugasemdir
16september

Veikur :(

Ohh ég er alveg að verða vitlaus, er búin að vera veik heima frá því á þriðjudaginn, fór reyndar í vinnuna í gær af því að ég helt að ég væri að verða góð og svo má ég eiginlega ekki missa úr vinnunni því að jú manni vantar alltaf pening. Svo í gærkvöldi var ég bara orðin frekar slöpp aftur. Og svo í dag þurfti ég að fara aðeins út líka, og er bara orðin helmingi verri en ég var. Fýldur En ég vona bara að ég skáni á morgun svo ég komist í skólan á mánudaginn, það er ekkert rosalega gott að missa mikið úr núna því að þetta er síðasta önnin og ég á að útskrifast um jólin. Ég vona bara að ég nái þessu ég verð að gera það....annars bara ég veit ekki hvað.

En pæliði í því að hanga bara heima á laugadagskvöldi veik, og allir einhversstaðar úti að skemmta sér. Ég verð víst bara að sætta mig við það, það koma helgar eftir þessa. Svo var mér líka boðið í innflutningspartý á Selfossi en komst ekki þangað og svo ekkert svo gott veður og svo mikið af slysum á þessari leið núna undanfarið.

En já ég er bara að horfa á Friends til að drepa tíman eins og ég er búin að vera að gera síðustu daga. Samt mjög fínt, frekar langt síðan ég hef horft á þá.

Jæja farin að glápa meira....
Later....
16. september 2007 klukkan 00:15
Kolbrún
Engin athugasemd
10september

Helgin sem leiđ

Jæja hvað segiði þá....
Síðast helgi var rosaleg....Fórum gellurnar í kveðjupartý hjá Erlu, því hún er að fara út í 6 mánuði.. Laugadagskvöldið byrjaði þannig að Una, Inga og Helga komu til mín og svo fórum við í partýið sem var í sumarbústað í Víðidal. Og eins og hvað við erum góðar í að rata þá ætluðum við aldrei að finna þetta og svo þegar við loksins fundum staðin þá festum við bílinn í drullu og ég og Inga fórum út að ýta bílnum. Svo var mar náttla í fínum skóm og það var bara drulla sko. Það var mjög fínt í partýinu bara drukkið og spjallað.

Síðan kom bara rúta og flutti fólk í bæinn. Byrjuðum á að fara á Celtic og það var mjög fínt. Þar hitti ég Helga og Þóa og ég talaði við þá heillengi. En þeir hafa örugglega haldið að ég væri að reyna við þá. En allavega var það ekki ætlunin svo sorry strákar...og sorry Pétur ég ætlaði ekki að meiða þig.Skömmustulegur Allavega var ég mjög drukkin þannig að er bara mín afsökun....ætla ekkert að vera með móral yfir þessu. Ef þig þekkið mig ekki nógu vel, þá er ég bara svona.

Kolla
10. september 2007 klukkan 13:07
Kolbrún
1 athugasemd
04september

Flutt inn :)

Jæja þá er skólinn bara byrjaður á fullu og alveg nóg að gera. Fullt af verkefnum og læti. Ég er í skólanum frá 8 til hálf 4 eða 5 fjórum sinnum í viku og frá á föstudögum en þá verð ég bara að vinna, sem er bara fínt, og ég er alltaf í helgarfríi það er nú bara nauðsynlegt.

Á föstudaginn síðasta fékk ég íbúðina mína afhenta. Um leið og ég kom inn um dyrnar sá ég bara að það var allt drulluskítugt og gaurinn sagðist hafa þrifið hátt og lágt. Það gat ég nú bara ekki séð. Karlmenn og þrif passa ekki saman held ég. Allavega ég og Árdís byrjuðum á því að þrífa samt getur Árdís ekki mikið gert því að hún er orðin svo ólétt Glottandi og hún fer bara bráðum að springa, en hún var nú bara svo góð að hún reyndi eins og hún gat að hjálpa mér. Svo um kvöldið fórum við með nokkra kassa yfir og mamma hjálpaði mér aðeins að þrífa í eldhúsinu svo við ætðum raðað í skápa og svoleiðis.
Svo á laugadaginn fékk bíl til að flytja öll húsgöning mín. Um kvöldið bauð ég Helga og Hilmari vini hans upp á bjór til að þakka fyrir hjálpina.Hlæjandi Hefði ekki getað þetta án þeirra.

Já svo er hún Árdís bara að fara að verða mamma bráðum, það eru ekki nema rúmlega 2-3 vikur eftir og það verður gaman að fá litla dúllu í heiminn. Einhvern sem mar getur dekrað við.Svalur

Annars er ekkert meira að frétta í bili.....bara skóli og brjáluð vinna þessa dagana.

Later
04. september 2007 klukkan 10:56
Kolbrún
Engin athugasemd
27ágúst

Flytja, flytja flytja

Fæ íbúðina mína ekki á morgun, ekki hinn heldur hinn..... Hlæjandi

Fæ hana á fimmtudaginn og það er bara eins gott að hún glansi af hreinleika, því að ég er ekki búin að vera alveg nógu ánægð með leigjandan..... Svo á laugadaginn fæ ég flutningabíl og þá fer öll búslóðin....hlakka svo til.
27. ágúst 2007 klukkan 19:09
Kolbrún
2 athugasemdir
14ágúst

vinna, skóli og flutningur

Jæja hvað segir fólkið?

Ég er bara búin að vera að vinna og aftur vinna, gaman gaman. En núna eru bara 3 vinnudagar eftir, og ég get bara ekki beðið eftir að hætta, ekki það að það sé eitthvað leiðilegt að vinna. Bara komin með nóg eins og er, skil ekki hvenig fólk getur verið að vinna í svona vinnu dag eftir dag allt árið í kring.
 
Allavega þá byrjar skólinn í næstu viku og mig hlakkar bæði til og er pínu kvíðin. Síðasta önnin í skólanum, gæti trúað að þetta verið svotið erfið önn. En mar þarf bara að leggja meira á sig. Veit ekki ennþá hvort ég verð að vinna eitthvað með skólaum, á eftir að tala við Lín og athuga hvað mar má vinna mörg % með námslánunum. Ef það er í lagi þá verð ég líkegast bara í apótekinu á föstudögum eins og síðasta vetur. Það er svosem ágætt.

Svo er ég að fara að fá íbúðina mína aftur, get varla beðið, ég flyt þangað um mánaðmótin og það á eftir að vera gaman. Það er nú samt ekkert slæmt að búa hjá pabba og mömmu en þegar mar er orðin svona gamall eins og ég, þá þarf mar bara á því að halda að vera einn með sjálfum sér bara....þið skiljið. Ég er alveg að verða búin að pakka öllu niður, eða svona megninu.

En annars er ekki mikið að frétta...fór að djamma síðustu helgi með Auði og það var bara helvíti gaman, á föstudagskvöldið fórum við á Gaukinn að horfa á Dalton spila og það var fínt, samt mjög lítið að fólki svona fyrripartinn allavega. Síðan á laugadagskvöldið fórum við á Hressó að horfa á Dalton aftur. Bara að láta vita að ég er ekki grúppía, kærasti Auðar er rótari í bandinu. Beilaði samt á því að fara í Gleðigönguna, en hefði samt viljað það, en var bara ótrulega löt um daginn.

Næstu helgi þarf mar að kíkja eitthvað út líka, það er náttla menninganótt og mar verður að láta sjá sig aðeins í bænum. Er það ekki?

Later gater
14. ágúst 2007 klukkan 19:56
Kolbrún
1 athugasemd
22júlí

Ekkert spes

Vitiði það að ég hef bara nákvæmlega ekkert að segja....nema ég vinn alla daga og fer heim að glápa á tv og svo að sofa, ekkert spennandi að gerast. Og ég nenni ekki að skrifa ferðasögu, þetta var bara sólbað og bjór og matur. Okey og tvær skoðunarferðir um Rhodos og ein ferð í vatnsrennibrautagarð.

Þar hafiði það...later
22. júlí 2007 klukkan 13:34
Kolbrún
4 athugasemdir
18maí

Bara eitthvađ smávegis

Jæja þá er ég loksins búin að setja inn myndir.

Nú er skólinn búin og mar situr bara heima að gera ekki neitt nema að hanga í tölvinni, en það er allt í lagi. Ég náði öllu bara með góðum einkunnum samt var 9 svona mest í uppáhaldi virðist vera. :) Fékk sex 9 og eina 10 og eina 6 líka sem er það lægsta sem ég fékk.....en það er allt í lagi því að ég náði öllu er það ekki það sem skiptir mestu máli?

Ég er búin að vera að vinna svoltið núna, en fer ekki í fulla vinnu fyrr en ég kem heim frá Rhodos. Það er bara vika þanngað til ég fer, og það er alveg spenningur dauðans núna, þarf að fara að pakka niður eða eitthvað, týna til allt dótið sem ég ætla að taka með mér.

Í gærkvöldi fór ég í saumaklúbb til hennar Ingunnar í Hafnarfirði og það var bara rosa fínt, góður matur og svona. :) Og það má eiginlega segja það að Ingvar sonur hennar var miðdepill athyglinnar, kannski ekki oft að svona margar stelpur koma í heimsókn, hann var allavega hrókur allsfagnaðar.

Annað kvöld er ég að fara í útskriftar veislu hjá Eddu systur hennar Auðar, já hún er að útskrifast úr Borgarholtsskóla, rosalega dugleg stelpa, vildi að ég væri svona dugleg.....

En í kvöld er bara leti, því að það er víst vinna á morgun mar þarf víst að vinna sér inn einhverja moninga... :) alla vega læt þetta duga í bíl, en allavega komnar myndir....þeir sem er búinar að vera að bíða, hættið að kvarta..... ;)

Adios amigos....later gater
Kollus

18. maí 2007 klukkan 20:03
Kolbrún
1 athugasemd

Ađalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Kolbrún
  • Netfang: kolla81@hotmail.com
  • Stađur: Reykjavík
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Nemi

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Atburđarteljari

Klukkan

Innskráningar kubbur